Árni Páll Árnason ætlar réttilega að skrúfa fyrir sjálftöku skilanefnda um áramótin. Þá eiga slitastjórnir að taka við og starfa í umboði eigenda gömlu bankanna. Skilanefndir eru ekki ábyrgar fyrir neinum og haga sér í samræmi við það. Of lengi hafa þær leikið lausum hala við vaxandi sögur um mútuþægni sumra nefndarmanna. Verri er þó löngun þeirra til að framlengja starf sitt út í það óendanlega. Þær hafa löngum verið siðlausar og hafa reynt að teygja lopann sem mest. Efnahagsráðherra segir réttilega, að ekki sé verjandi, að þeir, sem hafa rosatekjur af meðferð vandamáls, geti framlengt vandamálið.