Sjónvarps-símafundir spara fé

Punktar

Fróðleg er umræðan um ferðakostnað Daniel Gros á ráðsfundi Seðlabankans. Á Seðlabankinn að borga, Framsóknarflokkurinn eða Gros sjálfur? Auðvitað á Seðlabankinn að borga. Það getur hins vegar orðið dýrt, ef stjórnarmenn eftirlitsstofnana verða margir erlendir. En það er herkostnaðurinn við að reka ríkisstofnanir, sem enginn treystir. Enginn vill hafa íslenzk fífl í stjórnum lengur, ekki einu sinni Framsókn vill það. Hins vegar gleyma menn nytsamlegu atriði, sem ferðaóðir Íslendingar hafa of lítið sinnt. Það eru sjónvarps-símafundir. Erlent einkaframtak notar þá mikið. Þeir spara fé.