Tillögur Alþjóða gjaldeyrissjóðsins um skattahækkanir miða við, að velferð sé ekki skorin meira niður. Í staðinn verði hækkaðir þeir skattar, sem eru lægri hér á landi en í nágrannalöndunum. Það eru einkum skattar á fyrirtæki, fjármagnstekjuskattur og benzíngjald. Frekjudallarnir í samtökum atvinnulífs hafa stjórnað lágu sköttunum og ærast núna út af tillögum sjóðsins. Segja, að fyrirtæki muni flýja land vegna hærri skatta. Hvert eiga þau að flýja, til Evrópu eða Bandaríkjanna? Þar eru skattar á fyrirtæki og auðfólk hærri en hér. Tími þessara samtaka sem valdaafls í bakherbergjum á að vera liðinn.
