Sjálfstæðið er í Evrópu

Punktar

Svíar eru í Evrópusambandinu, en við ekki. Samt höfum við tekið upp 80% af því regluverki, sem Svíar hafa tekið upp. Hafi Svíar misst sjálfstæði sitt til Bruxelles, þá höfum við þegar glatað 80% af því. En þá er ekki tekið tillit til, að Svíar hafa atkvæðisrétt í bandalaginu, en við ekki. Í raun höfum við tapað meiru af sjálfstæði okkar en Svíar hafa gert. Því að við höfum ekkert um nein evrópsk mál að segja, höfum bara tugi manna í vinnu við að þýða reglugerðir. Við munum því endurheimta hluta af sjálfstæði okkar með því að ganga í Evrópusambandið. Þar fáum við sæti við öll borð.