Sjálfsagður skattur á koltvísýring

Punktar

Í fjármálaráðuneytinu er tilbúin hugmynd um 7-8 króna koltvísýringsskatt á benzín og olíu. Til viðbótar öðrum gjöldum á eldsneyti. Frumvarp um gjaldið verður lagt fram í haust. Þetta er svipað stefnu Evrópusambandsins. Það vill þó setja gjaldið á nýja bíla og hækka verð þeirra um 20%, misjafnt eftir útblæstri. Hér er hins vegar talað um gjald á eldsneyti, sem kemur í staðinn. Með tilliti til framvindu olíukreppunnar eru þessar ráðstafanir sjálfsagðar. Undarlegt er þó, að ekki skuli samtímis vera ráðgert að setja koltvísýringsskatt á flugfarseðla eða flugvélabenzín.