Sjálfhelda uppreisnar

Punktar

Vesturveldin herða árásir á hreyfanleg skotmörk í Líbýu, einkum skriðdreka. Uppreisnarmönnum hefur reynzt erfitt að hagnýta sér loftárásirnar. Hvorki hefur tekizt að hrekja herinn frá Misrata né Zintan. Svo virðist sem ekki takist þar að gera leyniskyttur hersins óvígar. Þetta freistar til aukinnar þáttöku Vesturveldanna í stríðinu. Slíkt væri misráðið, uppreisnarmenn verða sjálfir að heyja sitt stríð. Komið er að þeim krossgötum, að uppreisnarmenn hafa jafna stöðu, þegar stórvirkjum morðtólum hersins er rutt úr vegi. Ef það dugir ekki, verða uppreisnarmenn einfaldlega að sjá sjálfir um sín mál.