Sinnuleysi um lýðræði

Punktar

Spiegel segir lýðræði hafa farið halloka fyrir harðstjórn víða um heiminn síðustu árin. Framferði Bandaríkjanna hefur komið óorði á lýðræði og gert harðstjórum kleift að herða tökin. Frægasta dæmið um það er Rússland. Um leið hafa aðrar afurðir vestrænnar hugsunar hvatvetna beðið hnekki, einkum markaðshyggja og hnattvæðing. Ágirnd vestrænna kaupsýslumanna er öllum sýnileg. Á sama tíma hefur innri styrkur lýðræðis dofnað á Vesturlöndum. Ungt fólk fylgist í auknum mæli alls ekki með stjórnmálum og greiðir ekki einu sinni atkvæði. Brýnt er, að lýðræðið nái aftur eyrum unga fólksins.