Símalaust við Stóru-Laxá

Punktar

Maður slasaðist í morgun við Stóru-Laxá. Langan tíma tók að koma boðum um slysið, því að ekki er þráðlaust símasamband á svæðinu. Félagi mannsins þurfti að fara langa leið til að komast í síma. Bæði stóru símafélögin hafa að vísu birt heilopnu auglýsingar með kortum, sem sýna símasamband um allt land. Þar á meðal í Hrunamannahreppi. Vodafone reið á vaðið og Síminn kom á eftir. Það eru dæmi um lífshættulegar auglýsingar, sem ekki er fótur fyrir. Ég hef áður bent á, að auglýsingar Vodafone og Símans eru skaðleg lygi, en eftirlitið ypptir öxlum. Því verður ógæfa, þegar NMT-síminn fellur út um áramótin.