Sigurvegari bandarísku kosninganna var internetið. Fyrst í sögunni var það kjarni baráttunnar. Kosningavél Barack Obama kunni á netið, ekki vél John McCain. Ótrúlegum fjárhæðum var safnað á netinu. Safnað var sjálfboðaliðum, sem fóru í kjósendur, maður á mann. Öll tækni persónumiðlunar var notuð í botn. Frá Facebook yfir YouTube til Twitter. Taparinn var Bush forseti, sem týndist. Þegar John McCain var nuddað upp úr stuðningi hans, sagði hann: “Ég er ekki George Bush”. Enginn frambjóðandi repúblikana vildi aðstoð forsetans. Allir litu á slíkt sem hreint eitur. Neðar verður ekki komizt.
