Sigurjón segir frá

Punktar

Gaman hefur verið að fylgjast með ferli Sigurjóns M. Egilssonar sem  blaðamanns og ritstjóra. Hann og Reynir Traustason eru góð dæmi um þá kenningu mína, að sjómenn sé beztu blaðamannsefnin. Á síðustu árum hefur Sigurjón borið af í stétt fjölmiðlunga. Í samanburði var ferill minn snautlegri, á uppgangstíma frjálsrar fjölmiðlunar 1960-1995. Eftir aldamót hefur umhverfi blaðamanna versnað á hverju ári. Stafar af aukinni fátækt fjölmiðla og innreið siðblindra bófa í pólitík og fjölmiðlun. Sigmundur Davíð og Bjarni Ben eru dæmi um snákana. SIGURJÓN bloggar í dag um samskipti sín við Bjarna og aðra bófa úr fjármálum og viðskiptum.