Sjálfhverfur plebbi varð ræmdur fyrir nokkrum árum af barnslegu bloggi um kúk og piss. Síðan þróaðist hann úr kúki og pissi yfir í unglingablogg um kynóra, einkum nauðganir á femínistum. Þetta var á árum útrásarinnar, þegar nýríkir plebbar réðu dómgreind fólks. Guðmundur Andri Thorsson útskýrði hinn sjálfhverfa plebba svona: Yfirborðsmennska, frægðardýrkun, upphafning heimsku og ofbeldis, klámvæðing, kynþáttafordómar og hatur á konum. Guðrún María Guðmundsdóttir er smekklaus ritstjóri símaskrárinnar. Hún verðlaunaði sjálfhverfa plebbann með fótósjoppuðu skrípó af honum á kápu símaskrárinnar.