Fjármálaráðherra hefur skipað eitt kúgilda sinna í stjórn Glitnis, Sigmund Sigurgeirsson. Ráðgjafi Árna Mathiesen var rekinn frá útvarpinu fyrir ósæmilegan fréttaflutning. Það var að mati Boga Ágústssonar og fleiri, þar á meðal Dóru Ingvadóttur, lögfræðings útvarpsins. Í kjölfarið tók ráðherra kvígildið í faðm sér og gerði að ráðgjafa. Það hefur nú fengið aukadjobb í brunaliði brennuvarga. Spillingin blómstrar sem aldrei fyrr.