Sífelld skapraun Geirs

Punktar

Geir Haarde er voðalega pirraður. Getur ekki svarað einfaldri spurningu um stöðu jafnréttis samkvæmt stjórnarsáttmála. Nánast allir pólitíkusar geta snúið út úr spurningum. Bara farið eins og Össur Skarphéðinsson að tala um orðaval Steingríms Sigfússonar á síðustu öld. Það getur Geir ekki. Hann kvartar bara yfir spurningum, segir þær óviðeigandi eða jafnvel dónalegar. Spurningunni um jafnréttið vísaði hann til kjarasamninga. Rétt eins og það sé hlutverk stéttarfélaga að efna sáttmála ríkisstjórnarinnar. Geir virðist vera farið að líða illa í starfi, sem hann veldur ekki. Sífelld skapraun.