Siðleysið breyttist ekkert

Punktar

Samkvæmt könnun Viðskiptablaðsins telur þorri stjórnenda í fyrirtækjum, að slæmt siðferði einkenni íslenzkt viðskiptalíf. Bragð er að, þá barnið finnur. Þetta meinta siðleysi er raunverulegt, eins og kom fram í hruninu. Fjárglæframenn höfðu vaðið áfram undir kjörorðinu: “É’ á’ða, é’ má’ða”. Gallinn er, að þetta breyttist ekkert eftir hrunið. Nýir bófar tóku við af gömlum bófum í bönkunum og hlíta ráðum sams konar siðlausra lagatækna og bókhaldstækna. Þeir hossa gömlum fjárglæframönnum og afhenda þeim fyrirtækin aftur. Eða finna bara nýja bófa, sem eru eins siðlausir og hinir gömlu.