Síðbúin ást á safni

Punktar

Siv Friðleifs og Þorgerður Katrín kveina sáran yfir, að ekki sé enn komið náttúrugripasafn. Ég er hjartanlega sammála þeim. Hins vegar skil ég ekki, af hverju þær þögðu, þegar þær voru ráðherrar. Er bara brýnt að fá safnið, þegar er vinstri stjórn, en ekki þegar er hægri stjórn? Í Hafnarfirði kvarta Sjálfstæðismenn sáran yfir leynd á lánakjörum bæjarins. Ég er hjartanlega sammála. Hins vegar skil ég ekki, hvers vegna Sjálfstæðisflokkurinn við völd berst ætíð af hörku gegn upplýsingum um orkuverð. Er bara brýnt að fá að vita, þegar vinstri stjórn er við völd, en aldrei þegar er hægri stjórn?