Friðrik Sófusson hefur vikið fyrir Herði Arnarsyni í Landsvirkjun. Æðibuna í stórvirkjunum víkur fyrir viðurkenningu á takmörkuðu orkumagni. Æðibuna í fyrstu lægstu tilboð víkur fyrir höfnun fyrstu tíu tilboða. Nýi forstjórinn hyggst virkja minna og fá meiri sölutekjur. Hægt sé að fá mun hærra verð en hingað til. Æðibuna í áli víkur fyrir áhuga á fleiri og smærri tegundum orkukaupenda. Næst lofar nýi forstjórinn að láta Þjórsárver í friði. Þá er Landsvirkjun hætt að vera skrímsli og orðin að venjulegu fyrirtæki í sátt við land og þjóð. Strax búin að afskrifa fyrirhyggjulaust álæði Húsavíkur.