Sérvalin orð um manndráp

Punktar

“Samhliða skemmd”, collateral damage, er merkilegt hugtak spunakarla hjá vestrænum herjum. Fólk er óvart drepið. Þegar sextíu börn eru óvart drepin í Afganistan, heitir það collateral damage. Með hugtakinu er reynt að segja okkur, að “skítur gerist”, shit happens. Ekki sé hægt að koma í veg fyrir, að venjulegt fólk lendi í skotlínu hermanna. Á grundvelli þessarar hugsunar neitar brezki herinn í Afganistan að borga aðstandendum skaðabætur. Hann telur sig ekki bera ábyrgð á hliðarverkunum hernaðaraðgerða sinna. Sérvalið orðalag sparar drápurum að horfast í augu við afleiðingar gerða sinna.