Sértækir Árni og Ernir

Punktar

Hef hvergi orðið var við áhuga Sigmundar Ernis Rúnarssonar og Árna Johnsen á flóttafólki eða hælisleitendum. Ekki einu sinni hér á landi, þar sem slíkir eru meðhöndlaðir eins og hundar. Hvað þá í Noregi, sem er handan við hafið. En þessir tveir hægri sinnuðu þingmenn hafa lagt fram sértækt frumvarp um að veita Madinu Salamovu íslenzkan ríkisborgararétt. Hún er frægur og ríkur rithöfundur. Það segir allt um mannúð þeirra félaga. Þeir hafa enga slíka. En reyna að nudda sér utan í frægðarfólk til að vekja athygli á sjálfum sér. Frumvarp Sigmundar Ernis Rúnarssonar og Árna Johnsen er Alþingi til skammar.