Sérkjör útvalinna

Punktar

Útilokað er, að þingmenn haldi akstursgreiðslum, sem þeir hyggjast taka af opinberum starfsmönnum. Þeir geta ekki haldið sér utan aðgerða gegn stóra fjárlagagatinu. Í gamla daga komust þingmenn upp með að láta aðrar reglur gilda um sig en annað fólk. Þá gátu þeir haft sérstök skattalög um sig, til dæmis í greinargerðum fyrir bifreiðakostnaði. Eftir hrunið má það ekki lengur gerast. Alþingismenn verða að láta yfir sig ganga það sama og þeir láta yfir aðra ganga. Þeir verða að skila akstursnótum eins og aðrir. Álit þjóðarinnar á þeim er svo veikt, að þeir mega ekki gera það enn sjúkara.