Sérgrein Ingibjargar Sólrúnar

Punktar

Fagra Ísland “snýst ekki um það, hvort það eigi að byggja álver eða ekki”, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hræddur er ég um, að kjósendur hennar hafi einmitt skilið Fagra Ísland þannig. Það var einmitt tilgangurinn að fá kjósendur til slíks skilnings. Fá þá til að kjósa flokkinn í kosningunum. Nú er komið í ljós, að flokksforustan tekur ekkert mark á Fagra Íslandi. Þá kemur Ingibjörg formaður með þessa skýringu. Hún segir okkur nú, að Fagra Ísland snúist um “rétt náttúruverndar við skipulag og við landnýtingu.” Hvað sem það þýðir eiginlega á íslenzku. Þetta er sérgrein pólitíkusa.