Sendum Björgólfi reikninginn

Punktar

Íslendingar eru ótrúlega bjartsýnir á dómsmál, sem þeir efna til. Hvað eftir annað rek ég mig á, að fólk telur sig geta öðlazt réttlæti fyrir dómstólum. Reynslan sýnir, að réttlæti kemur dómstólum ekkert við. Þeir gefa sér bara einhverjar forsendur, venjulega þröngar, og dæma út frá þeim. Dómstóll úti í Evrópu mundi ekki líta á smæð íslenzku þjóðarinnar í úrskurði um IceSave. Hann gæt fríað Íslendinga út á einhvern vinkil málsins. En hann gæti líka skellt þúsund milljörðum á okkur og gert okkur gjaldþrota. Ég vil ekki taka slíka áhættu. Vil borga 47 milljarða og senda Björgólfi reikninginn.