Stuðningur Steingríms J. Sigfússonar við fjármagnseigendur nær engri átt. Án samþykkis Alþingis er hann að sóa 87 milljörðum króna í peningafyrirtæki af ýmsu tagi. Hann hagar sér nákvæmlega eins og Geir Haarde. Á sama tíma er skorin niður öll þjónusta við almenning. Steingrímur getur ekki falið sig bakvið Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Hann gat látið sér nægja að tryggja fimm milljónir af hverjum reikningi í Sparisjóði Keflavíkur. 98% einstaklinga og 90% fyrirtækja hefðu fengið allt sitt. Og framlag ríkisins hefði bara numið þremur milljörðum í stað átján. Steingrímur er sendisveinn fjármagnseigenda.