Selt og ekki selt í senn

Punktar

Orkurugl Reykjavíkur hefur undið upp á sig einn snúning enn. Borgarstjóri lofaði í gær, að REI, útrásargeiri Orkuveitunnar, yrði ekki seldur. Sala á REI hafi ekki verið rædd í meirihlutanum. Allir félagar borgarstjórans í meirihlutanum ákváðu samt í gær að selja Reykjavik Energy Investments. Ætla í dag að leggja fram um það tillögu. Sjálfstæðisflokkurinn virðist samkvæmt þessu ekki hafa samráð við félaga sinn í meirihlutanum, Ólaf F. Magnússon borgarstjóra. Á sama tíma ræða þeir við mestu hallærisríki Afríku um aðild REI að heimsfrægu rugli þar á bæ. Meirihlutinn er búin að tapa glórunni.