Álitsgjafar tala íslenzku, ekki lögfræðísku. Segja kost og löst á mönnum og málefnum. Geta þá haft hliðsjón af siðferðilegum sjónarmiðum, pólitískum sjónarmiðum og alls kyns sjónarmiðum öðrum en lögfræðilegum. Fæstir þeirra hafa lýst skoðun á lögfræðilegri sekt eða sakleysi vörumerkis 365-miðla. Þeir fjalla meðal annars um skoðanir, sem vörumerkið lýsir í bloggi og bók. Og um, hvort vörumerkið eigi að vera vörumerki. Ýmsir kvarta yfir slíkri umræðu undir slagorðinu: “Maður er saklaus, unz sekt hans er sönnuð.” Þeir skilja alls ekki muninn á umræðu álitsgjafa og málaferlum fyrir dómstóli.