Seðlabankinn framleiðir verðbólgu

Punktar

Furðulegt var að sjá Þórarinn G. Pétursson ræða í sjónvarpinu um of há laun almennings. Sjálfur er aðalhagfræðingur Seðlabankans með milljón á mánuði. Hann andskotast samt yfir, að almenningur fái 200 þúsund eftir nokkur ár. Hann hefur ekkert leyfi til að tala svona um fólk. Allra sízt er ástæða til að kvarta yfir, að of há laun almennings leiði til verðbólgu. Há laun leiða hins vegar til örlítið meiri kaupgetu og aukinna viðskipta. Verðbólga næstu mánaða mun ekki stafa af ofsæld almennings, heldur af hækkun stýrivaxta. Hér verður alls engin þensla og öll verðbólga stafar því af rugli Seðlabankans.