Schengen dugar ekki

Punktar

Schengen-samstarfið verður endurskoðað. Flokkar þjóðrembinga hafa gagnrýnt frjálsa flutninga fólks yfir landamæri. Hvarvetna bera útlendingar ábyrgð á meirihluta glæpa. Enda eru glæpagengi jafnan fyrst til að notfæra sér aukið ferðafrelsi. Og fólk á faraldsfæti er að meðaltali minna löghlýðið en fólk, sem situr um kyrrt, samanber víkinga. Frávik frá Schengen eru leyfð til að stöðva ferðir fótboltabullna. En nú sligast kerfið af tugþúsundum frá Túnis og Líbýu. Verði Schengen-samstarfinu ekki breytt, munu flokkar þjóðrembinga ná auknu fylgi kjósenda. Breytingar á Schengen verða sjálfsvörn kerfisins.