Skæðadrífa aðvarana lamdi seðlabankastjóra og forsætisráðherra okkar í þrjú ár. Mætustu fjármála- og hagfræðingar í útlöndum sögðu, að gandreiðin mundi enda með skelfingu. Þar á meðal er nýbakaður nóbelsverðlaunamaður, Paul Krugman. Landsfeður okkar og hagfræðingar þeirra hafa í þrjú ár kosið að hunza allar aðvaranir. Sama er að segja um eftirlitið í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Það var frjálshyggjuliðið úr Vöku. Davíð Oddsson og Geir Haarde eru ofsatrúarmenn, sem flutu viljandi sofandi að feigðarósi. Voru sannfærðir frjálshyggjumenn. Trúðu Hannesi, að hún væri skotheld.