Grunsamlegt er, að landssamband kvótagreifa hefur að nýju tekið sæti í nefnd um þjóðareign fiskimiða. Nefndin átti að finna þjóðarsátt, ekki sátt við þrönga sérhagsmuni 166 kvótagreifa. Nefndin rokkar með orð, býr til nýtt hugtak nýtingarréttar. Þannig að kvótagreifar eigi fiskimiðin áfram, þótt formlega sé á þeim þjóðareign. Munu eiga nýtingarrétt. Allir verða kátir og ekkert hefur gerzt. Dæmigerð lausn pólitíkusa á vandamáli, sem þeir þora ekki að leysa. Landssamband kvótagreifa hefur linnulaust lamið á þjóðareign fiskimiða. Hefur nu gert samsæri með Jóni Bjarnasyni ráðherra gegn henni.
