Eftir flokkadrættina út af Evrópusambandinu er Samfylkingin í fínni stöðu. Flokkurinn er einn um stuðning við Evrópu og fær obba þess fylgis. Aðrir flokkar bítast um fylgi þjóðernissinna. Stjórnendur viðskiptalífsins hljóta að pirrast út í Sjálfstæðisflokkinn fyrir að hrökkva snöggt frá stuðningi yfir í andstöðu. Þeir hljóta sumir hverir að hallast að Samfylkingunni. Með þeim koma peningar í kosningabaráttu. Gleymd er aðild Samfylkingarinnar að hruninu, sem Sjálfstæðisflokkurinn framleiddi. Hún getr gengið til næstu kosninga í fullri vissu um, að verða áfram stærsti flokkur landsins.