Samfylkingin er að hverfa

Punktar

Geir Haarde hefur eftir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, að stjórnarsamstarf haldi áfram. Eðalkratar segja mér, að svo sé ekki. Einhver lýgur, líklega Geir, því hann segir sjaldan satt. Óþolandi er að sæta misvísandi fréttum af vilja helztu ráðamanna þjóðarinnar. Frammámönnum Samfylkingarinnar ber skylda til að láta vita um vilja Ingibjargar. Því lengur sem þeir draga það, þeim mun meira hrapar fylgi flokksins. Hann er nú orðinn fjórði stærsti flokkurinn. Hann mun áfram minnka meðan hann leyfir sér að hafa formann í limbói. Ég held fylgi Samfylkingarinnar fari niður fyrir 10% í næstu viku.