Ríkisstjórnin tregðast við að fara að lögum í vinnudeilu við ljósmæður. Hún neitar að taka tillit til námslengdar. Og lætur slúðra því út, að námið sé raunar alltof langt. Samt var það ríkisvaldið sjálft, sem bjó til námið. Sem það neitar núna að taka mark á. Ekki er nýtt, að ríkisstjórnir neiti að taka mark á sjálfum sér. En auðvitað er athyglisvert að sjá ríkisstjórn Samfylkingarinnar taka forustu á einu einasta sviði: Að beita kjafti og klóm til að hindra kvennastéttir í að fá sambærileg laun og karlastéttir. Svo sem ljósmæður, leikskólakennarar, þroskaþjálfarar, almennir kennarar.
