Sagðir vera bjánar

Punktar

Gagnrýni bandarískra fjölmiðla á George W. Bush og ráðgjafa hans verður illskeyttari með hverjum mánuði. Í International Herald Tribune í morgun eru tvær greinar, sem segja þá vera óhæfa til starfa. Þeir hafi ekki bara rangar skoðanir, heldur séu þeir beinlínis heimskir bjánar. William Pfaff rekur nokkur dæmi úr nýju plaggi hennar um stöðu öryggismála um að stefna hennar og sjónarmið séu bjánaleg. Paul D.Eton skrifar sérstaklega um Donald Rumsfeld og segir hann gersamlega óhæfan vegna almenns fábjánaskapar, sem hafi valdið bandaríska hernum miklum skaða.