Saga hinna ábyrgðarlausu

Punktar

Ábyrgðarlausir kjósendur kusu sér ábyrgðarlausa pólitíkusa, sem settu upp ábyrgðarlaust bankakerfi. Þegar það hrundi, héldu kjósendur áfram að vera ábyrgðarlausir. Ákváðu ábyrgðarlaust í þjóðaratkvæðagreiðslu, að þeir tækju ekki ábyrgð á ábyrgðarlausum bönkum. Mynduðu hagsmunasamtök ábyrgðarlausra óráðsíumanna og neita að borga af lánum sínum. Ábyrgðarlaust fólk framvísar allskonar lagakrókum gegn því að taka ábyrgð á IceSave. Ábyrgðarleysið er alfa og ómega þjóðarinnar. Nú vill ábyrgðarlausa fólkið aftur hindra, að venjulegt fólk endurheimti æru þjóðarinnar með friðarsamningi við útlönd.