Bandaríkjaher hefur viðurkennt, að Saddam Hussein hafði engin tengsli við Al Kaída. Búið er að grandskoða 600.000 leyniskjöl harðstjórans sáluga og ekkert komið fram um slíkt. Skýrsla hersins um það lak út í gær. Endanlega er staðfest, að Bandaríkin fóru í stríð við Írak á fölskum forsendum. Þær voru upplognar af landflótta Íraka, sem vildi komast til valda. Urðu að hornsteini utanríkisstefnu George W. Bush forseta. Enn þann dag í dag trúir helmingur bandarísku þjóðarinnar lygum Bush. Menn trúa jafnvel, að Saddam Hussein beri ábyrgð á árásinni á tvíburaturnana. Þetta er ömurleg þjóð.
