Í ruslpóstinum hjá mér er tilboð frá S24 okurbanka um 17,2% vexti á láni, sem bankinn vill veita mér. 17,2% vextir óverðtryggðir meðan verðbólgan er 2-4%. Vissulega dónalegasta tilboð, sem ég hef fengið. Felubanki í eigu annars banka, sem heitir Bros eða eitthvað álíka, vill koma mér í þrælkun hjá sér. Ákæra þarf svona banka. Fólk þarf lán fyrir íbúðum og á að geta fengið þau með 4% vöxtum. Ef þjóðfélagið væri í lagi. Fólk á ekki að þurfa lán fyrir neinu öðru, alls ekki fyrir ferðum, bílum, flatskjám eða pítsum. Glæpsamlegt er að hvetja fólk til að taka lán á 17,2% okurvöxtum.
