Brottför Lilju og Atla er án áhrifa. Stjórnin hefur annan og stærri vanda: Bankana, fjármálaeftirlitið, bankasýsluna, bankaleyndina, kvótagreifana. Engum teningum var kastað, þegar Lilja og Atli hurfu af velli. Stóðu ekki við neitt Rubicon-fljót. Allra sízt eru þau neinn Caesar á leið til Rómar. Atla skortir bakland, Suðurland styður Steingrím eins og önnur flokksfélög. Lilja á hins vegar fjölmenna sveit aðdáenda á fésbók. Hún kemst aftur inn í Reykjavík. En hún verður aldrei flokkur. Til þess er hún of einþykk. En ég varð fyrir vonbrigðum, er ég horfði á sjálft Rubicon. Það er tæpast lækur.