Jonas Kristjansson http://www.jonas.is/ Jonas Kristjansson Hagvöxtur er marklaus http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14152 Tölur um hagvöxt eru að mestu marklausar. Landsframleiðsla er reiknuð út eftir viðskiptum. Ef þú gerir við bíl vinar þíns, er það ekki hagsvöxtur. Ef bíllinn fer á verkstæði, er það hins vegar hagvöxtur. Skiptivinna mælist ekki í hagvexti. Sjálfbærni er núll í augum excel-tækna greiningardeilda. Í kreppu eykst samhjálp, skiptivinna og sjálfbærni. Landsframleiðsla mælist þá minni en í gervisveiflu fyrir hrun. Samt tala menn í alvöru um hagvöxt eða ekki hagvöxt. Eru þá að tala um landsframleiðsluna. Þetta dæmi sýnir vel, að hugtök, sem excel-tæknar nota, eru jafnan marklaus og þá einnig gagnslaus. 09 Sep 2010 12:11:53 GMT Vatnajökuls-fasisminn http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14151 Sagnfræðilaus stjórn Vatnajökuls fékk ótal athugasemdir við reglur hennar um þjóðgarðinn. Afhenti samt umhverfisráðherra í gær óbreytt plagg frá fyrra uppkasti. Engin mótrök koma þar við rökum gagnrýnenda. Gamla ruglið er bara endurútgefið. Enn er bannað að ríða Bárðargötu í Vonarstræti. Hvers vegna? Engin svör fást við því í nýju útgáfunni frekar en hinni fyrri. Ekki orð um, hvers vegna ekki megi ríða Vonarskarð. Aþþíbara. Reglurnar sýna umhverfis-fasisma, sem leikur lausum hala. Ráðherra á að rífa marklaust plaggið. Og skipa skárri nefnd til að smíða skynsamlegt plagg, sem farið verður eftir. 09 Sep 2010 08:53:01 GMT Bjarni og Einar kátir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14150 Bjarni Benediktsson og Einar K. Guðfinnsson hreykja sér af, að fyrningarleið sé blásin af. Stórkarlalegur misskilningur gæzlumanna hagsmuna kvótagreifa. Þjóðin hefur ekki blásið af að eignast kvótann. Hefur bara fengið mótbyr. En hún mun sigra þá Bjarna og Einar. Það er bara marklaus hagsmunagæzlunefnd Jóns Bjarnasonar, sem vill áfram gefa kvótagreifum kvótann. Og ráðherrann er sjálfur marklaus. Málið fer væntanlega fyrir stjórnlagaþing, sem ákveður, að þjóðin eigi kvótann. En ekki umbjóðendur Bjarna Benediktssonar og Einars K. Guðfinnssonar. Til lengdar borgar sig ekki pólitískt að ögra þjóðinni. 09 Sep 2010 05:24:39 GMT Ólafur Helgi vill hrista ykkur http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14149 Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður vill afkastakerfi í sektum fyrir of hraðan akstur. Vill, að hluti sekta fari til rekstrar löggunnar. Hún sér þá sér hag í að sekta sem flesta. Eins konar vestræn útgáfa af rekstri lögreglu í þriðja heiminum. Hún er svo illa launuð, að hún lætur læða seðli í lófa sér fyrir meint umferðarlagabrot. Þetta heitir á alþjóðamáli að hrista vegfarendur. Tillaga Ólafs Helga um afkastakerfi í sektum er vestræn aðferð við að hrista vegfarendur. Ólafur Helgi hefur löngum verið refsingafíkinn. En vondandi fær fíknin ekki útrás í afkastakerfi við refsingar almennings. 08 Sep 2010 18:30:07 GMT Að brenna kóran og biblíu http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14148 Bókabrennur eiga sér vonda sögu. Leið hinna fordómafullu til að lýsa frati á skrifað orð. Hitler lét brenna bækur. Róttækur klerkur í Bandaríkjunum vill brenna kóraninn. Fullur fordóma eins og Jenis av Rana. En ástæðulaust er að banna honum að brenna kóraninn. Eða að banna einhverjum að brenna biblíuna. Eða Moggann. Fordómar eru leyfðir í vestrænu samfélagi svona almennt séð. Þjóðverjar eru þó enn viðkvæmir fyrir háværum nazisma. Út af fyrir sig er gott að ögra múslimum. Þeir brenna mannamyndir, en ganga svo af göflunum, þegar trúarrit þeirra er brennt. Hafa gott af að kynnast litrófi nútímans. 08 Sep 2010 15:41:53 GMT Gerbreytt stjórnarskrá http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14147 Stjórnlagaþingið verður erfitt. Þar verða gagnstæð sjónarmið. Þar verður fólk, sem styður Sigurðar Líndal í, að gamla stjórnarskráin dugi. Fáu þurfi þar að breyta. Aðrir vilja hugsa stjórnarskrána upp á nýtt. Hafa sett fram flott skipurit breytinga. Mér lízt vel á það. Er sammála breytingarsinnum. Stjórnarskráin þarf að taka betur á grundvallaratriðum. Svo sem trúfrelsi og skoðanafrelsi. Hún þarf líka að segja, að þjóðfélagið sé opið, ekki leyndó. Hún þarf að banna bankaleynd. Hún þarf að gefa þjóðaratkvæði fastan sess í stórpólitískum ákvörðunum. Allt slíkt kallar á gerbreytta stjórnarskrá. 08 Sep 2010 11:46:20 GMT Burt með svikarana http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14145 Fáum okkur nýja ríkisstjórn, sem efnir loforð Jóhönnu forsætisráðherra um þjóðaratkvæði um kvótann. Samningaleiðin fyrirhugaða er ekkert annað en óbreytt eignarhald kvótagreifa. Með viðbótarvæli til Alþingis um breytingu á stjórnarskrá. Alþingi mun ekki manna sig upp hér eftir frekar en hingað til. Fjórflokkurinn stendur ætíð vörð um sérhagsmuni með fulla vasa af fé. Munið Björn Val Gíslason og Lilju Rafney Magnúsdóttur, Svanfríði Jónasdóttur og Ólínu Þorvarðardóttur, fulltrúa sérhagsmuna. Standa með stjórnarandstöðunni að svikum fjórflokksins. Aðeins Hreyfingin neitaði að vera með óhæfunni. (Viðbót: Ólína er ekki í nefndinni, heldur Guðbjartur Hannesson. Afsakið mistökin) 08 Sep 2010 10:04:38 GMT Steingrímur er óhæfur http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14146 Steingrímur J. Sigfússon er óhæfur fjármálaráðherra. Hann er duglegur, en veit ekki bofs um siðferði. Um tíma átti fjármálaráðuneytið bankana, en lét undir höfuð leggjast að nota eignarhaldið. Steingrímur átti að hirða veðin í kvótanum fyrir ríkisframlagi til bankanna, en gerði ekki. Ef hann hefði gert það, ætti þjóðin kvótann, þyrfti ekki að rífast um fyrningu. Steingrímur átti að siðvæða yfirstétt bankana, en gerði ekki. Steingrímur átti í samráði við Gylfa Magnússon að semja skyndifrumvarp um afnám bankaleyndar, en gerði ekki. Hafði í tvö ár öll völd í landinu og klúðraði siðferðishlutverkinu. 08 Sep 2010 08:54:28 GMT Ríkisstjórnin sveik þjóðina http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14144 Ríkisstjórnin er búin að vera. Hún sveik þjóðina um kvótann. Jón Bjarnason valdi vini kvótagreifanna í sáttanefnd, sem hafnaði fyrningu kvóta. Hún sveik þjóðina um siðvæðingu banka. Önnur kynslóð bankstera eftir hrunið er nákvæmlega eins glæpahneigð og sú kynslóð bankstera, sem olli hruninu. Hún sveik þjóðina um afnám bankaleyndar. Í rauninni er ríkisstjórnin öll eins gefin fyrir leyndó og allar fyrri ríkisstjórnir hafa verið. Hún er þar á ofan að setja upp ríkisritskoðun fjölmiðla. Enginn munur er á þessari aumu ríkisstjórn og þeirri ríkisstjórn, sem hrunverjar hefðu sjálfir myndað. 07 Sep 2010 18:04:43 GMT Hundrað milljarða lagatæknir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14143 Árni Páll Árnason lagatæknir samdi eitt illræmdasta lögfræðiálit sögunnar. Við hlið Mishkin-álits Tryggva Þórs Herbertssonar, sem er illræmdasta excel-álit sögunnar. Árni Páll sagði lög heimila, að Íbúðalánasjóður lánaði bönkum hundrað milljarða ofan á húsnæðislánin. Allt það fé glataðist skömmu síðar, þegar bankarnir fóru á hausinn. Íbúðalánasjóður tapaði öllum þessum hundrað milljörðum. Ríkissjóður neyðist til að bæta það sjóðnum. Á kostnað barna þinna og barnabarna. Samt er Árni Páll í ríkisstjórn og þar á ofan orðinn bankaráðherra. Spilling bankstera verður enn meiri en hjá mislukkuðum Gylfa. 07 Sep 2010 15:15:39 GMT Bankaleynd, bankaleynd, bankaleynd http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14142 "Bankaleynd, bankaleynd, bankaleynd", gargar Höskuldur H. Ólafsson bankster, sakaður um svindla milljörðum í þágu Jóns Ásgeirs. "Bankaleynd, bankaleynd, bankaleynd", gargaði Ásmundur Stefánsson bankster, sakaður um stuðning við kennitölflakk gangstera. "Bankaleynd, bankaleynd, bankaleynd" gargaði Sigurjón P. Árnason bankster, þegar hann vaknaði á morgnana. Hver kynslóð bankstera á fætur annarri þylur bankaboðorðin þrjú. Þau voru alfa og ómega hrunsins. Eru alfa og ómega eftirleiksins, þegar vangeta nýrrar stjórnar er orðin öllum ljós. Heimtum pólitíkusa, sem þora að skera upp bankaleyndina. 07 Sep 2010 12:15:33 GMT Wahab-ítarnir eru komnir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14141 Múslimar á Íslandi hafa of lengi beðið eftir lóð undir mosku. Eru hófsamir, flestir frá Palestínu. Frábær viðbót við litrófið í samélaginu. Eiga að fá stax sína lóð. En nú hafa komið til sögu ríkir arabar frá Sádi-Arabíu. Tengjast ekki félagi múslima. Hyggjast setja upp madrössu í Ými í Öskjuhlíð. Þar verður kenndur wahab-ismi. Róttæk íslam frá Sádi-Arabíu, svartasta afturhaldslandi heims. Þar ríkir kvenhatur, þær mega ekki einu sinni keyra bíl. Þaðan koma peningarnir í madrössur í Pakistan, sem rækta terrorista. Þaðan kom Osama bin Laden. Pössum okkur á wahab-ítum með fullar hendur fjár. 07 Sep 2010 08:41:04 GMT Berglaug í örbylgjunni http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14140 Frú Berglaug er snyrtilega innréttuð matstofa í gömlu hornhúsi við Laugaveg 12. Gólfin og stiginn eru flott og útsýni er fínt af neðri hæð á regndrepa túrista á Laugavegsvafri. Þjónusta er notaleg, en músíkin er of hátt stillt. Matseðill er stuttur og ferðamannalegur og maturinn er fallega upp settur. Þarna er kjötsúpa og plokkfiskur og girnilegt humarsalat (1690 kr). Ýmislegt var gott í hráefnum, humar fínn og hráskinka frábær. En matreiðslan var sumpart úti að aka. Skötuselur og kartöflur (2290 kr) úr frysti og örbylgju voru engin draumafæða. Betri matstaðir eru til á svæðinu, sem betur fer. 07 Sep 2010 05:29:35 GMT Margt mikilvægt vantar http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14139 Hér vantar lög um, að heilbrigðar leikreglur gildi í fjármálum. Um afnám bankaleyndar. Að sjóðfélagar stjórni lífeyrissjóðum. Að bankar hætti að hossa fjárglæframönnum. Að bankastjórar komi ekki úr röðum bókhaldstækna, bankatækna, lagatækna og excel-tækna. Burt með alla þessa siðlausu tækna, sem settu þjóðfélagið á hausinn. Hér vantar, að ráðherrar byrji að kynna sér skýrslu rannsóknarnefnar Alþingis. Hafi hana næst hjartanu í mannaráðningum og anarri hegðun sinni. Því miður haga ráðherrarnir sér eins og þeir séu í ríkisstjórn hjá Davíð eða Halldóri, Geir eða Ingibjörgu. Eða Tryggva Þór. 06 Sep 2010 18:54:51 GMT Fjölmiðlar eru geldir http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14138 Í gamla daga voru ritstjórar og forstjórar fjölmiðla jafnsettir, höfðu hvor sitt svið. Forstjórinn var þó oftast "primus inter pares", því að peningar hafa tilhneigingu til að vera æðstir. Þannig var það mína starfsævi. Fyrsta áratug þessarar aldar komu til sögunnar útgáfustjórar, sem voru ritstjórum æðri. Svipað gerðist áður í Bandaríkjunum. Afleiðingin sést í versnandi fjölmiðlum, meiri hugsun um fjármál, hræðslu við dýra rannsóknavinnu. Þetta kerfi einkennir stóru fjölmiðlana á Íslandi og gelti þá sem fjölmiðla. Þeim ber þó að þjóna notendum fremur en eigendum. Annars verða þeir áfram geldir. 06 Sep 2010 14:56:10 GMT Hjörleifshöfði og Landeyjarhöfn http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14137 Einu sinni var Hjörleifshöfði úti í sjó og gott hafnarstæði var undir honum. Katla sá svo um að færa ströndina utar. Hjörleifshöfði stendur núna langt inni í landi og þar verður aldrei aftur hafnarstæði. Vestan höfðans er hin nýja Landeyjarhöfn og bíður eftir síðbúnu Kötlugosi. Í samanburði við Kötlu eru hræringar í Eyjafjallajökli bara barnaleikur. Þegar hún gýs, fyllist höfnin af leir og ströndin færist utar. Þá felst hin dæmigerða Kleppsvinna í að halda höfninni opinni. Datt engum í hug, að Katla mundi færa ströndina út fyrir Landeyjarhöfn? Eins og hún gerði áður við höfnina hjá Hjörleifshöfða. 06 Sep 2010 11:53:10 GMT Sjá goðumlíka glæpamenn http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14136 Höskuldur H Ólafsson bankastjóri hefur ekki hugmynd um siðferði. Ekki frekar en forveri hans hjá Arion-banka. Ekki frekar en aðrir þeir, sem hafa verið bankastjórar eftir hrun. Í skjóli skilningsleysis Steingríms J. Sigfússonar og Gylfa Magnússonar. Allir bankastjórarnir ögra þjóðinni með því að mylja undir mestu fjárglæframenn landsins umfram aðra. Þeir eru siðlausir, því að þeir eru bankamenn og siðferði er þeim lokuð bók. Ekki má ráða bankamenn sem bankastjóra, heldur á að setja þar inn heimspekinga og siðfræðinga. Þar á að vera fólk, sem fær enga glýju í augu við að horfa á goðumlíka stórglæpamenn. 06 Sep 2010 09:06:02 GMT Fullyrðing um einelti http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14135 Hef ekki séð dæmi um einelti fjölmiðla í garð þjóðkirkjunnar, sem Örn Bárður Jónsson prestur fullyrti. Þyrfti fyrst að sjá eitt dæmi. Enn síður sé ég, að fjölmiðlar hafi fjallað óvandað um siðferðisbrenglun kirkjunnar. Hún á bara að passa sig betur. Örn Bárður getur sagt upp fjölmiðlum öðrum en Ríkinu og býður því fávíslegan brandara um það efni. Menn geta hafnað fjölmiðlum rétt eins og ríkiskirkjunni. Fjölmiðlar hafa flutt eðlilegar skoðanir um, að Karl biskup Sigurbjörnsson segi af sér. Hefur höndlað siðferðisbrenglun kirkjunnar heimskulega og hrakið fólk burt. Örn Bárður er bara alls ekki með á nótunum. 06 Sep 2010 07:46:13 GMT Fyrsta verk nýs ráðherra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14134 Fyrsta verk Árna Páls Árnasonar bankaráðherra ætti að vera að höfða mál gegn skilanefndarmönnum og slitastjórnarmönnum. Fyrr stórtækan þjófnað á fé, sem þeim var trúað fyrir. Þeir hafa tekið sér margföld laun á við það, sem þolanlegt er talið í gjaldþrota þjóðfélagi. Þetta er stærsti þjófnaðurinn á Íslandi eftir hrunið. Engu máli skiptir, hvort bófarnir stela af útlendingum eða Íslendingum. Þjófnaður er alltaf þjófnaður. Miklu skiptir, að siðlausir bófar komist ekki upp með glæpi. Því verður að höfða mál. Ef Árni Páll gerir ekkert, vitum við hvers vegna. Hann er nefnilega sjálfur siðlaus, greyið. 05 Sep 2010 18:40:44 GMT Ríkisritskoðun Katrínar http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14133 Undarleg eru fyrirhuguð fjölmiðlalög Katrínar Jakobsdóttur. Tengjast vinstri áráttu miðstýringar hugarfars. Lögin banna grófar skoðanir, "sem kynda undir hatri". Það er orðalag, sem Stóri bróðir elskar að misnota. Betra er að hafa engar reglur um skoðanir og framsetningu þeirra. Lögin stofna ríkisritskoðun undir heitinu Fjölmiðlastofa. Hún á að boða og banna og beita viðurlögum án þess að áfrýja megi úrskurðum. Af hverju má ekki lasta Múhameð spámann eða Katrínu Jakobsdóttur? Af hverju má ekki segja Vinstri græna útúr-spillta og þjóðkirkjuna undir áhrifum myrkrahöfðingjans? Katrín er úlfur í sauðargæru. 05 Sep 2010 13:43:50 GMT Hrunverjar vaða uppi http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14132 Mér verður daglega óglatt, þegar Alþingi er komið saman. Hrunverjar stíga þar daglega upp í pontu og kvarta yfir afleiðingum sinna eigin gerða. Saka ríkisstjórnina um atvinnuleysi, sem hrunverjar bjuggu til. Saka hana um samdrátt landsframleiðslu, sem hrunverjar bjuggu til. Kvarta yfir viðræðum um IceSave, sem þeir ábyrgðust á sínum tíma. Viðbjóðslegt er að sjá Tryggva Þór Herbertsson og Einar K. Guðfinnsson bölsótast yfir eigin verki og kenna öðrum um. Átakanlegast er þó, að sjá þriðjung þjóðarinnar styðja hrunverja. Ógeðskarlar hossa sér auðvitað á þjóð, sem þjáist af gullfiskaminni. 05 Sep 2010 09:07:21 GMT Fjallmenn í vöfflukaffi http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14131 Kátt var á Kaldbaki í hádeginu í gær. Samkvæmt hefð hófu fjallmenn sex daga leitir hér í vöfflukaffi. Kindum fækkar og fjallmönnum fjölgar. Fleira fólk en fé verður í Hrunarétt á föstudaginn kemur. Hér höfðu menn þrjá til reiðar og hafa kokk með sér á fjöllum. Veðurspáin er góð, bara skúrir, hiti góður og engin þoka, sem er allra bezt. Munur er að vera fjallmaður í dag. Alls staðar eru góðir fjallaskálar, jafnvel með klósetti. Og það er munur að vera hestur í leitum, þegar menn hafa þrjá til reiðar. Í gamla daga létu menn sér einn nægja, enda urðu hestar snemma gamlir. Núna eru þeir allir hressir. 05 Sep 2010 06:03:36 GMT Kerfið sýnir þér fingurinn daglega http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14130 Hver staðfestingin rekur aðra. Bankar, skilanefndir og slitastjórnir elska fjárglæframenn og hata almenning. Mestu glæpamenn þjóðarinnar fá alls kyns fyrirgreiðslu, sem almenningur fær ekki. Björgólfur Thor fær felldar niður ábyrgðir upp á tugi milljarða. Reyndu það sjálfur. Jón Ásgeir fær vandamál sín fryst til langs tíma. Reyndu það sjálfur. Munur á gömlum bankaskúrkum og nýjum er enginn. Moka þarf öllum forstjórum og millistjórum út úr bönkunum. Öllum. Ríkisstjórnin reyndi ekki par að siðvæða fjármálin. Kerfið sýnir þér fingurinn daglega. Á skerinu mun ekkert lagast fyrr en í blóðugri byltingu. 04 Sep 2010 19:13:05 GMT Íslendingar eru glæpaþjóð http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14129 Mistökin í IceSave voru tvenn. Í fyrsta lagi settu Geir og Ingibjörg með stuðningi Davíðs neyðarlög, sem tryggðu innlendar innistæður að fullu, en engar erlendar. Það gerði Bretland brjálað og leiddi til, að Geir, Ingibjörg og Davíð samþykktu IceSave. Útlönd töldu samt, að Ísland væri skálkaskjól glæpamanna. Síðan komu landráðamenn og æstu örvitana til að hafna IceSave í þjóðaratkvæðagreiðslu. Voru mistök númer tvö, sýnu verri en hin fyrri. Þá sannfærðust útlönd endanlega um, að þjóðin í heild væri glæpaþjóð. Sú skoðun gildir enn, enda rétt. Því fáum við engin lán í útlöndum um ófyrirséða tíð. 04 Sep 2010 14:30:29 GMT Formenn valta yfir skýrslu http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14128 Fjórflokkurinn hefur ekkert lært af hruninu og skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Hún benti á siðlaus tengsl stjórnmála og fjármála sem meginvanda. Samt semja formenn hans um að varðveita leynd yfir fjármálum pólitíkusa og flokka. Framlög mega áfram vera nafnlaus upp á fjárhæðir, sem nema hundruðum þúsunda. Listinn fæst ekki birtur fyrr en eftir dúk og disk. Bandaríkjamenn eru engir englar, en þar er daglega birtur listi um öll framlög til flokka, frambjóðenda, samtaka. Öll. Fólk getur því tekið mið af upplýsingunum fyrir kosningar, ekki bara löngu síðar. En hér er sami skíturinn og jafnan áður. 04 Sep 2010 09:46:22 GMT Útsvör tvöfaldist í Keflavík http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14127 Árni Sigfússon er einstæður gaur. Hirti fasteignir Keflavíkur og afhenti til einkafyrirtækis, þar sem hann sjálfur er formaður. Lætur hreppinn svo borga leigu til einkafyrirtækisins, þótt útsvörin standi ekki undir því. Smíðar höfn í Helguvík fyrir meira en milljarð í von um orku í álver. Lætur tveggja milljarða erlent lán gjaldfalla á hreppinn. Reisir steintröll Árna frænda Johnsen út um alla móa. Var svo endurkosinn. Enginn vill taka Keflavík að sér frekar en Garðabær vill Álftanes. Ríkið hefur ekki ráð á því. Útsvör í Keflavík verða því að tvöfaldast til að standa undir Árna og kjósendum hans. 04 Sep 2010 05:43:33 GMT Böndin berast að Jóni http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14126 Steingrínur J. Sigfússon biðst afsökunar á of fáum konum í ríkisstjórninni. Lofar að bæta fljótt úr því. Hann fær tækifæri til þess um áramótin, þegar aftur verður stokkað upp í stjórninni. Hann hefur upp á þrjá stóla að bjóða, stól sinn, stól Ögmundar og stól Jóns Bjarnasonar. Varla býður hann sinn stól, sjálfur hornsteinn ríkisstjórnarinnar. Varla býður hann stól Ögmundar, sem á að vera nýja límið í þingmeirihlutanum. Böndin berast því að Jóni, sem er óvinsælasti ráðherrann síðan Kristján Möller hvarf af vettvangi. Jón er höfuðóvinur neytenda og ber ábyrgð á hnút, sem kominn er á fyrningu kvótans. 03 Sep 2010 18:31:33 GMT Sérfræðingurinn í glansmyndum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14125 Auðvitað tek ég mark á því, þegar Tryggvi Þór Herbertsson ræðir á Alþingi um glansmynd af efnahags- og fjármálum. Hann er sérfræðingurinn í glansmyndum. Hafandi skrifað margar glæstar glansmyndir undir dulnefninu Hagfræðistofnun háskólans samdi hann frægustu glansmynd allra tíma. Hún kom út rétt fyrir hrunið og fjallaði um, hversu frábær og traust væru íslenzk efnahags- og fjármál. Ég sakna þess, að hrunverjinn skuli ekki vitna í þá frægu skýrslu, þegar hann fjallar á Alþingi um glansmyndir. En hann er auðvitað haldinn sama sjúkdómi og Einar Guðfinnson. Þeim finnst heimurinn hafa byrjað 2009. 03 Sep 2010 15:35:21 GMT Sölvi og Samfylkingin http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14124 <a href=http://www.pressan.is/pressupennar/LesaSolvaTryggvason/ulfur-i-saudagaeru >Sölvi Tryggvason</a> bloggar vel í dag um svik Tony Blair við jafnaðarstefnu. Bendir á samhengið við Bill Clinton, sem líka var úlfur í sauðargæru. Afnam bremsur og varnagla við gróðafíkn bankstera. Bill og Tony voru höfuðpaurar blöðrunnar, sem sprakk með hruni nokkurra banka í höfuðríkjum engilsaxa. Þeir komust þó ekki í hálfkvisti við Davíð Oddsson og Sjálfstæðisflokkinn. Frjálshyggjan hér felldi alla íslenzku bankana og hálfa þjóðina. En Sölvi bendir líka á, að New Labour er enn fast í hugarheimi íslenzkra krata, sem bera samábyrgð á hruninu. Samfylkingin hefur enn ekki gert upp fortíð sína. 03 Sep 2010 12:41:31 GMT Fjárglæframenn í Keili http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14123 Fjárglæframenn eru víða enn á kreiki. Ríkisendurskoðun segir frá misferli ráðamanna Keilis á Keflavíkurvelli. Þeir eru Hjálmar Árnason, fyrrverandi þingmaður Framsóknar, og Runólfur Ágústsson, sem setti Bifröst á hausinn. Tóku 236 milljónirnar frá ríkinu 2008-2009 og notuðu í annað en tilskilið var. Þar með brutu þeir samning við menntaráðuneytið og Háskóla Íslands. Sem forstjórar einkaskóla hafa þeir safnað 136 milljón króna halla. Ekki kemur til greina, að ríkið borgi. Ríkisendurskoðun segir, að Keili beri sjálfum að tryggja eigin rekstur og standa sem einkafyrirtæki skil á skuldbindingum. 03 Sep 2010 09:21:53 GMT Kaldur veruleiki síast inn http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14122 Hinn kaldi veruleiki síast inn. Afar hægt, en síast samt. Íslendingar fá engin lán í útlöndum, því að við erum fyrirlitin. Talin vera bófar, sem vilji ekki borga skuldir. Engu máli skiptir, hvað er rétt og rangt í þeirri skoðun. Hún ræður samt ferðinni og það eitt gildir. Smám saman átta fleiri sig á, að IceSave er það, sem fælir útlendinga. Þess vegna fær Landsvirkjun ekki lán, þess vegna fær Orkuveitan ekki lán. Vegna þess að vandræðamenn æstu örvita landslýð upp í að hafna IceSave í þjóðaratkvæðagreiðslu. Kominn er tími til að ræða, hverjir eru hinir raunverulegu vandræðaamenn á Íslandi. 03 Sep 2010 05:39:19 GMT Möller hefndi sín http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14121 Kristján Möller hefndi sín strax á Jóhönnu með því að leyfa Flugmálastjórn að gefa starfsleyfi fyrir herþotur. Laug, að Jóhanna hefði samþykkt þetta framhjá ríkisstjórnarfundi. Svona einkafundi framhjá stjórnkerfinu. Einmitt í gamla stílnum eins og þegar Davíð og Halldór fóru í stríð við Írak prívat og persónulega. Efast um, að nokkur þori að taka Kristján aftur í stjórn. Einkarekinn pólitíkus af gamla skólanum, reynir að fá sitt fram með frekju og yfirgangi. Hollusta hans er engin. Aðrir ráðherrar komu af fjöllum. Strax á morgun hlýtur Ögmundur að afturkalla þetta einka-flipp hins hefnigjarna. 02 Sep 2010 17:09:31 GMT Furðufréttir fjárglæfra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14120 Furðulegar fréttir berast. Skilanefnd Landsbankans afskrifar 27 milljarða persónulega ábyrgð Björgólfs Thor Björgólfssoar á skuldum sínum. Fyrir þá upphæð hefði mátt afskrifa öll gengistryggð bílalán almennings og hluta af íbúðalánum. Hreiðar Már Sigurðsson og Kristján Arason komast upp með að ganga frá kúlulánum sínum án þess að borga krónu. Jóhannes Jónsson í Bónus fær 115 milljónir að gjöf frá Kaupþingi fyrir að vera ekki með leiðindi. Hann var búinn að vinna svo lengi hjá Bónusi og er svo fínn gaur, útskýrði brjálaði bankastjórinn í sjónvarpi. Við vitum með hverjum hjarta hans slær. 02 Sep 2010 16:02:22 GMT Árni Páll er svartur mínus http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14119 Jóhanna Sigurðardóttir fær þrjá plúsa í kladdann fyrir að reka Kristján Möller, Rögnu Árnadóttur og Gylfa Magnússon. Ekki bara óhæfir ráðherrar, heldur sköðuðu þau virðingu ríkisstjórnarinnar. Hún fær líka plús fyrir að fá Guðbjart Hannesson, sem hefur áður gert góða hluti. Jóhanna fær svo tvo mínusa fyrir að halda í Jón Bjarnason og Árna Pál Árnason, sem eru á sama plani og hinir brottreknu þrír. Svarti mínusinn er þó, að Árni Páll verður bankaráðherra. Hefur einmitt sýnt, að hann er hluti gamla og gerspillta Íslands, sálufélagi fjárglæframanna í bönkunum. Hann mun ekki siðvæða þá. 02 Sep 2010 12:32:07 GMT Síðustu dagar ráðherrans http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14118 Síðustu dagar Gylfa Magnússonar sem ráðherra eru skelfilegir. Landsbankinn afskrifaði 27 milljarða króna persónulega ábyrgð Björgólfs Thors á skuldum sínum. Jafnframt lofaði bankinn að lögsækja hann ekki. Frá þessu var gengið í samningi skilanefndar bankans og mesta fjárglæframanns Íslandssögunnar. Nú er kominn tími til að setja skilanefndir gömlu bankanna í gapastokkinn. Þær hafa hagað sér forkastanlega, en með þessu glæpaverki tekur steininn úr. Það var hlutverk Gylfa í ríkisstjórninni að hindra bankaspillinguna í að ganga aftur. Hann brást alveg. Ryðilagði um leið traust fólks á ríkisstjórninni. 02 Sep 2010 10:22:28 GMT Stjarnfræðilega dýr mistök http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14117 Barack Obama sagði i gær Íraksstríðið vera búið. Lét kyrrt liggja, að ekkert náðist af markmiðum stríðsins. Engin gereyðingarvopn fundust. Að minnsta kosti hundrað þúsund manns voru drepin, tvær milljónir eru landflótta og tvær milljónir eru heimilislaus. Allir kristnir menn hafa flúið landið. Öryggi er mun lakara en á tíma Saddam Hussein. Lítið fer fyrir umbótum á vestræna vísu. Olíuvinnsla er minni en fyrir stríð og rafmagn er af skornum skammti. Ríkisstjórnin er valdalítil og stjórnarkreppa hefur staðið í hálft ár. Kostaði Bandaríkin stjarnfræðilega upphæð, 90000 milljarða króna. 02 Sep 2010 06:07:09 GMT Grínistar og kvótagreifar http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14116 Um frystihúsin sagði Halldór Laxness: Spaugararnir reisa þau fyrir styrk frá ríkinu, síðan fá þeir styrk af ríkinu til að reka þau, þvínæst láta þeir ríkið borga allar skuldir en verða seinast gjaldþrota og láta ríkið bera gjaldþrotið. Ef svo slysalega vill til að einhverntíma kemur eyrir í kassann þá fara þessir grínistar út að skemta sér. Þá höfðu grínistar ekki enn fattað að veðsetja þjóðareignina. Nú hafa þeir fattað, eru meira gjaldþrota en nokkru sinni fyrr. Tími er kominn til, að ríkið hirði kvótann út úr gjaldþrotunum. Við þurfum enga fyrningarleið til að endurheimta auðlindina. 01 Sep 2010 18:19:49 GMT Hef áhyggjur af Sérstökum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14115 Hef áhyggjur af Sérstökum. Sé ekki, að Eva Joly haldi lengur í höndina á honum. Komin á kaf í franska pólitík, hefur misst áhugann á Íslandi. Það er skelfilegt, því að allt réttlæti á skerinu kemur að utan. Yfirstétt Íslands er óhæf eins og hún leggur sig. Hjá Sérstökum situr athugun á Landsbankanum á hakanum. Nýtur ósýnilegrar verndar, sem enginn getur klippt sundur. Nema útlendingurinn Eva Joly. Sem ekki er frændi neins. Ekki í klúbbi með neinum. Ekki í flokki með neinum. Og nýtur ekki peninga frá skúrkum. Getið þið kæru landsmenn ekki sent Joly bænarskrá um að koma aftur og kippa í Sérstakan. 01 Sep 2010 14:24:16 GMT Þáttaskil í mannréttindum http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14114 Bezta breytingin á ríkisstjórninni er að fá loksins innanríkisráðherra, sem ekki er fasisti. Ögmundur Jónasson er alls ólíklegur til að styðja forvirkar aðgerðir gegn borgurum landsins. Eða að setja rafbyssur á fjárhagsáætlun lögreglunnar. Einkum þó er hann líklegur til að taka mildar á málefnum nýbúa og flóttamanna. Vonandi snýr hann upp á handlegg Útlendingastofnunar, sem hagar sér eins og argasti bófi. Þar þarf raunar að henda út tugum lagatækna, sem eru áskrifendur að kaupi. Mundi spara ríkinu langþráð fé. Með Ögmundi í innanríkisráðuneytinu verða vonandi þáttaskil í mannréttindum á Íslandi. 01 Sep 2010 10:31:48 GMT Farið hefur fé betra http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14113 Ragna Árnadóttir hefur verið hægri sinnuð sem ráðherra, hlynnt lögregluríki Ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnunar. Í stíl Björns Bjarnasonar, átti ekki heima í þessari ríkisstjórn. Frábært að losna við hana. Gylfi Magnússon hefur staðið vörð um gamla bankakerfið. Hafnaði siðvæðingu banka og afnámi bankaleyndar. Frábært að losna við hann. Því miður er brottför þeirra of sein, skaðinn er að mestu skeður. Ríkisstjórnin hefur misst frumkvæðið og hrekst um brimgarða almenningsálits. Fólk telur réttilega, að hún hafði ekki stuðlað að nýju Íslandi í stað hins gamla, spillta. En farið hefur fé betra. 01 Sep 2010 07:28:23 GMT Björgólfur gerði ekki upp http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14112 Björgólfur Thor Björgólfsson er að því leyti verri en aðrir hrunverjar, að hann lýgur um uppgjör skulda. Segist hafa gert upp skuldir að upphæð 1200 milljörðum króna. Neitar auðvitað að svara, hvort hann hafi greitt. Það gerði hann nefnilega ekki, samdi bara um málið. Skilningur þjóðarinnar er, að uppgjör fjárglæframanna felist í, að þeir borgi skuldir sínar og skuldir fyrirtækja sinna. Ekki að þeir fái afslátt af skuldum. Ekki að hlutafélög séu undanþegin uppgjörinu. Þegar Björgólfur þykist hafa gert upp skuldir sínar, þá lýgur hann einfaldlega. Hefur blekkt marga, en þetta er of vírað. 31 Aug 2010 18:15:40 GMT Grunsamlegur stuðningur http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14111 Árni bæjó Sigfússon vill, að ríkið leigi aðstöðu á Keflavíkurvelli handa skrítnu fyrirtæki, sem á stríðsþotur. Tvennt er athugavert. Í fyrsta lagi er grunsamlegt, að fyrirtækið hefur reynt víðar að fá aðstöðu, en ekki fengið. Finna þarf, hvers vegna það var þar ekki velkomið. Þá fyrst er hægt að skoða málið. Í öðru lagi er grunsamlegt, að Árni skuli mæla með fyrirtækinu. Slík meðmæli óráðsíu-meistarans eiga að vera sjálfvirk ástæða til þess að fara varlega. Við skulum fá betri upplýsingar um fyrirtækið áður en við föllum fyrir enn einni kanínu sjónhverfingamannsins í gjaldþrota Reykjanesbæ. 31 Aug 2010 16:36:02 GMT Starfslok óreiðumanns http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14110 Sé ekki heila brú í að afhenda Jóhannesi í Bónus níutíu milljónir og tólf mánaða laun fyrir að fara. Gjaldþrota menn verða bara gjaldþrota án slíks. Hef bara aldrei heyrt um slíkt áður. Satt að segja er þetta glórulaust og sýnir, að stjórnendur Arion-banka eru tossar. Allt er athugavert við meðferð bankans. Fyrri eigendur fyrirtækja fá ekki starfslokasamning. Þeir eru ekki manna færastir til að reka fyrirtæki, þeir hafa sannað hið þveröfuga. Banki skuldar óreiðumönnum ekki eina krónu umfram það, sem þeir hafa áður haft af bankanum. Stjórnendur Arion eiga að vera á fjalli með hinum bjöllusauðunum. 31 Aug 2010 12:54:01 GMT Jónmundur var stöðvaður http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14109 Jónmundur Guðmarsson ætlaði sem bæjarstjóri á Seltjarnarnesi að græða eins og Árni Sigfússon í Keflavík. Varð meðeigandi og stjórnarmaður í fyrirtæki, sem vildi kaupa eignir hreppsins og leigja síðan hreppnum. Góðir menn sáu, hvað var að gerast og komu Jónmundi burt. Hann er núna forstjóri stærsta glæpafélags landsins. Árni fékk hins vegar að selja eignirnar og borgar núna leigu án þess að eiga aur fyrir henni. Hann ákvað líka að byggja álver, þótt ekki væri til rafmagn og enginn gæti kríað út lán fyrir því. Hann fékk góðan stuðning í kosningunum og nú er Reykjanesbær kominn verðskuldað á hausinn. 31 Aug 2010 09:43:02 GMT Stórfrétt: Lomborg skipti um skoðun http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14108 Frétt ársins birtist í morgun í Guardian. <a href=http://www.guardian.co.uk/environment/2010/aug/30/bjorn-lomborg-climate-change-u-turn>Bjørn Lomborg</a> hefur snúið við blaðinu. Frægasti andstæðingur aðgerða gegn loftslagsbreytingum segir núna, að stórauka þurfi framlög í baráttuna gegn breytingum af mannavöldum. Kemur fram í nýrri bók hans, sem væntanleg er í september. Af því tilefni tók Guardian viðtal við hann. Þar kemur fram, að mislukkaða loftslagsáðstefnan í Kaupmannahöfn fékk hann til að endurmeta málið. Nú þarf Friðrik Arngrímsson hjá landssambandi kvótagreifa að láta þýða nýju bókina eins og hina fyrri. Og nú getur Rajendra K. Pachauri hætt að líkja Lomborg við Adolf Hitler. 31 Aug 2010 05:19:14 GMT Orðhenglar Gnarristans http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14107 Stjórnarformaður Orkuveitunnar og Gnarristi hækkaði misjafnt hina ýmsu þætti þjónustunnar, sem Orkuveitan rukkar fyrir. Hækkaði lítið þá þætti, sem eru í samkeppni við aðra orkusala. En hækkaði þeim mun meira þá þætti, sem njóta skjóls einokunar. Þannig tryggir Haraldur Flosi Tryggvason, að fólk geti ekki vikið sér undan okrinu. Orðalag hans í sjónvarpinu sýnir, að hann er á sama báti og pólitíkusar. Notar orðhengilshátt til að sýna fram á, að svart sé hvítt. Haraldur Flosi hefur langa reynzlu í að níðast á almenningi sem yfirlagatæknir lögbrjótsins Lýsingar. Og líka reynslu af kennitöluflakki. 30 Aug 2010 18:40:03 GMT Vangefnar reglur hússins http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14106 Stundum er sagt, að ég taki of djúpt í árinni, þegar ég segi þjóðina vera vangefna. Það er rangt, ég dreg styttri stráin. Skoðið dæmi um bílstjóra, sem koma í Leifsstöð að sækja farþega fyrir hótel eða fyrirtæki. Þeir eru með spjald með nafni hótelsins eða fyrirtækisins, svo að farþeginn snúi sér til þeirra. Þá koma öryggisverðir Leifsstöðvar og segja bílstjórunum, að bannað sé að auglýsa í Leifsstöð. Vísa í reglur hússins. Þetta er gott dæmi um, að ráðamenn og öryggisverðir Leifsstöðvar stíga ekki í vitið frekar en aðrir Íslendingar. Þetta sama lýsir sér í afstöðu til IceSave og Gnarr-isma. 30 Aug 2010 15:30:35 GMT Braskfíkn bæjarstjórans http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14105 Árni Sigfússon bæjarstjóri hefur lengi verið á kafi í braski. Hefur falsað reikninga Reykjanesbæjar til að þeir sýni ekki gjaldþrot bæjarins. Gott dæmi um eiturlyf braskfíknar. Reykjanesbær lifir ekki, nema óskir rætist um álbræðslu, sem vantar innstungu fyrir rafmagn. Aðrir málsaðilar eru í sömu eiturvímu. Fjárfestu út á braskáráttu, standa núna ærulausir. Lándardrottnar hafa snúið baki við Reykjanesbæ eins og Orkuveitunni, Landsvirkjun og HS Orku. 1,8 milljarðar eru fallnir á Reykjanesbæ og verða ekki greiddir. Hver vill taka Árna á bakið og borga fyrir braskfíknina? Ég veit ekki um neinn. 30 Aug 2010 12:14:05 GMT Skjaldborg ráðamanna http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14104 Klemma pokaprestanna er ekki að hafa veitt fórnardýrum kirkjuskrímslisins ónóga hjálp eins og Hjálmar Jónsson heldur fram. Afsökun út af því stoðar lítt. Klemma þeirra felst í að hafa vitað um atferli skrímslisins og hafa samt slegið skjaldborg um það. Reynt að sannfæra konurnar um að falla frá aðgerðum gegn Ólafi Skúlasyni. Þeir voru partur af skjaldborg ráðamanna kirkju og þjóðar. Í þessari skjaldborg voru líka Davíð Oddsson og Vigdís Finnbogadóttir og aðrir hræsnarar yfirstéttarinnar. Karl Sigurbjörnsson og Hjálmar Jónsson eiga að biðjast afsökunar á aðild sinni að skjaldborginni. 30 Aug 2010 09:02:04 GMT Tíminn stendur kyrr http://www.jonas.is/leidarar/greininp.lasso?id=14103 Annað hvort er ég orðinn magur eða Ítalía feit, því að nú er pláss í bekkjum og stólum. Því get ég fylgt afastrákunum, sérfræðingum í pitsum og pöstum, sem segja þær svaka góðar á Ítalíu. Appelsín-glösin taka líka hálfan lítra og svo er íspinni ókeypis í eftirrétt. Fékk mér fisk dagsins að venju. Lúðan var fín, matreiðslan eins og fyrir rúmu ári. Smálúða með sveppum og blaðlauk í hvítvíns-rjómasósu og hvítum kartöflum. Tíminn stendur hér kyrr. Þröngur og notalegur og ætíð fullsetinn. Mikið skvaldur, ekta ítalskt. Gæðin traust, enda stjórna hér Ítalir. Pítsur og pöstur kosta 2350 krónur, fiskur 3250. 30 Aug 2010 05:21:02 GMT