Rosalega sniðugt lýðræði

Punktar

Dr. Gunni lýsir þjóðfélaginu vel í Bakþönkum Fréttablaðsins í dag. Þjóðin er eign Sjálfstæðisflokksins. Hann er svo vinsæll, að hann mundi fá fylgi þriðjungs þjóðarinnar, þótt forustumennirnir yrðu uppvísir að mannáti. Þjóðin er á fjögurra ára fresti kölluð til að útvega flokknum hækju. Sumar hækjur eru þreyttar á fylgishruni eftir fyrri stuðning og segja því pass að sinni. Framsókn er í þeirri stöðu núna. Aðrar þyrstir í stöður og stóla og hugsa sér að fást síðar við fylgishrunið. Þar er Samfylkingin stödd nú um stundir. “Rosalega sniðugt þetta lýðræði”, segir dr. Gunni að lokum.