Rolan segist vera ómissandi

Punktar

Því miður er biskupinn rola, sem hrekst úr einu virkinu í annað. Nú er Karl Sigurbjörnsson farinn að lofa að hætta bráðum, bara ekki strax. Hann er einn margra, sem skortir siðferðismat á aðstæðum. Rýnir bara í skýrslu og reynir að finna þar, hvort hann hafi brotið af sér eða bara gert mistök. Ég gerði bara mistök, veinar hann. Við hin finnum ekki siðferði í skýrslum, heldur í sjálfum okkur. Karl er ekki nógu mikill bógur til að skoða sjálfan sig. Hans eina mat snýst um, hvað hann komist upp með hverju sinni. Samt talar hann um sig sem ómissandi biskup, er þurfi að bjarga kirkjunni áður en hann hættir.