Björgólfur Thor Björgólfsson er ekki eins og þú og ég. Borgar ekki skatta. Er þannig ómagi á samfélaginu, sem borgar ýmsa þjónustu fyrir hann. Með því að borga ekki skatta, hafði hann ráð á að fljúga í einkaþotu til Peking. Þar hoppaði hann um salinn að loknum leik og lét ljómann af silfrinu falla á sig. Óviðkunnanleg hegðun af manni, sem ekki er skattborgari. Af hverju faðmar hann ekki að sér brezka olympíufara? Tímabært er, að hann hætti að gera sig breiðan í íslenzku samfélagi. Hann snúi sér frekar þangað, sem hann borgar skatta, ef það er einhvers staðar. Hér er hann undirmálsmaður.
