Ríkisvæðingin er verri

Punktar

Þótt nýfrjálshyggja hafi fengið snöggt andlát hér á landi, má ekki kasta barninu með baðvatninu. Með ríkisvæðingu bankanna þriggja þurfum við aftur að fást við illan anda helmingaskipta. Ráðherrar reyna að troða kommissörum í nýjar bankastjórnir. Þjóðin hefur tæpast manndóm til að hindra framvindu ríkisvæðingar. Hún ríkti á dögum Húsnæðismálastjórnar og Fjárhagsráðs og bátagjaldeyris. Það kerfi var verra en nýfrjálshyggjan, sem tempra má með auknu regluverki og eftirliti. Með því að hafna nýrri einkavæðingu og einkavinavæðingu. Með því að taka upp ópólitískar ráðningar fagmanna.