Ríkisstjórnin stjórnar engu. Hrekst milli fyrirskipana Sjálfstæðisflokksins og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins. Flokkurinn tefur IceSave og stjórnlagaþing og þjóðareign auðlinda, ríkisstjórnin hlýðir. Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn heimtar árásir á fólkið, ríkisstjórnin hlýðir. Embættistæknar Flokksins stýra mannvonzku kerfisins, ríkisstjórnin hlýðir. Bankatæknar Flokksins stjórna bönkum og skilanefndum og slitastjórnum og Bankasýslu og Fjármálaeftirliti, ríkisstjórnin hlýðir. Lagatæknar Flokksins stjórna dómstólum og ríkissaksóknara, ríkisstjórnin hlýðir. Hér ræður Flokkurinn.
