Ríkisstjórnin lét kúga sig

Punktar

Raunar er það ríkisstjórnin, en ekki Sjálfstæðisflokkurinn, sem fer verst út úr leka tölvupósta bandaríska sendiráðsins. Hún lækkaði ráðgerðan orkuskatt álbræðslna úr einni krónu á kílóvattstund í tólf aura. Fyrir milligöngu bandaríska sendiráðsins, sem tók að sér málflutning fyrir álbræðslurnar. Sendiráðið sagði ríkisstjórninni, að orkuskatturinn mundi skaða þær og leiða til minni sóknar í vatnsorku. Er þó slíkur orkuskattur almenn regla um alla Evrópu. Áróður sendiráðsins beygði ríkisstjórnina. Miklu nær hefði verið að halda einni krónu og þurfa ekki að rústa þáttum í heilbrigðisþjónustunni.