Ríkisstjórnin fór í morgun í hópferð til Suðurnesja. Leysti atvinnuskortinn þar með því að flytja hann til Reykjavíkur. Boðaði líka eitt setur í viðbót við þau melrakkasetur og selasetur og draugasetur, sem fyrir eru víðs vegar. Gleymdi þó að minnast á almannatengla-setur til minningar um stéttina, sem verst hefur leikið ríkisstjórnina. Einnig boðaði hún fundasetur sínar vítt um land, væntanlega til að efla atvinnu. Þetta eru meiri brandarakarlar en Jón Gnarr. Á sama tíma frestar ríkisstjórnin ítrekað langþráðum aðgerðum vegna ótrúlegs seinagangs og getuleysis nefndamanna og embættismanna sinna.