Ríki geta orðið gjaldþrota

Punktar

England varð gjaldþrota á stjórnarárum Játvarðs III um miðja 14. öld. Snemma á 19. öld urðu öll ríki Suður-Ameríku gjaldþrota nema Brazilía. Rússland varð gjaldþrota 1998 og Argentína 2001. Þetta gerist, þegar ríki geta ekki staðið við afborganir af skuldum. Þannig eru Hafnarfjörður, Reykjanes og Álftanes gjaldþrota. Algengt er, að íslenzk fyrirtæki verði gjaldþrota. Þá taka bankarnir oft þátt í glæpnum með því að aðstoða þau við kennitöluflakk. Ísland er langt frá því að verða gjaldþrota, getur staðið við skuldbindingar næstu ár. En Grikkland rambar á brún gjaldþrots, einnig Írland og Portúgal.