Vetó Ólafs Ragnars Grímssonar er fyrst og fremst persónuleg tilraun til að umskrifa æviferil hans sjálfs. Klappstýra útrásarinnar verður að bjargvætti kvalinnar smáþjóðar. Davíð og Geir reyndu að koma á fót óheftum Thatcherisma á Íslandi. Ólafur Ragnar notaði forsetaembættið til að styðja tilraunina, greiða götu íslenzkra glæpamanna í útlöndum. Ólafur er mikilvægur þáttur í hugmyndafræðilegri tilraun, sem endaði í frækilegu skipbroti. Nú vill hann breyta sagnfræðinni um sig. Greip tækifærið, sem gafst í áskorun tugþúsunda. Hrunverjar lofa hann, en hann bætir ekki stöðu sína í sögunni. Hún versnar.
