Reima ekki á þá skóna

Punktar

Eðlilegt er, að fangelsi reyni að siða fanga. Kenna þeim að umgangast lífið og tilveruna. Fyrsta skrefið er að fá þá til að sjá um sig sjálfir. Eins og Erlendur S. Baldursson afbrotafræðingur segir í DV: “Við munum ekki taka upp á því að færa mönnum í rúmið eða reima á þá skóna.” Brýnt er, að fangar læri að þrífa húsnæði sitt, kaupa í matinn og elda mat sjálfir. Aðstaða er til þess á Litla-Hrauni og þar hafa verið námskeið í matreiðslu. Nokkrir fangar hafa mótmælt því, telja sig líklega búa á hóteli. Þeir, sem kunna ekki reglur samfélagsins, hafa gott af að læra undirstöðuatriði þeirra.