Rannsóknir á Alþingi

Punktar

Hugvitsmaður Alþingis er Tryggvi Þór Herbertsson, ráðgjafi Geirs Haarde úr hruninu. Ráfar um gangana og hreytir ókvæðisorðum í þingmenn, er hann mætir. Vill rannsókn á skjalastuldi í þingsal. Stundaskrá málþófs brennuvarganna, sundurliðuð upp á mínútu, hvarf af borði þingmanns Hreyfingarinnar. Tryggvi á að heimta rannsókn á fleiri málum Hreyfingarinnar. Til dæmis þarf rannsókn á neftóbaksnotkun þingmanna, einkum Össurar Skarphéðinssonar. Einnig þarf rannsókn á misnotkun á matartíma þingmanna Hreyfingarinnar. Misnotkunin kann að leiða til varanlegs tjóns á heilsu svangra og vansvefta brennuvarga.