Ríkið hefur þjóðnýtt Glitni 75%. Án þess að reka bankastjóra og bankaráð. Án þess að afnema ofurlaun með einu pennastriki. Þeir, sem keyrðu bankann í fang skattgreiðenda, eiga bara að sitja áfram og skemmta sér. Það er ekki þetta, sem þjóðin vill heyra. Hún vill réttlæti, Vill ekki, að þjóðnýting sé í þágu glæframanna. Hún vill bara, að þjóðnýting sé í þágu almennings. Undarlegur endir kapíalismans í þessu landi, að dólgar einkavæðingar verði að embættismönnum sósíalisma Geirs og Davíðs. Glitnir á að falla ríkinu í skaut sem gjaldþrota og verðlaust fyrirtæki og með verðlausum forstjórum.
