Ein helzta trúarsetning auðvaldsins er, að fé sé bezt komið hjá þeim, sem hafa krækt í það. Kunni betur með það að fara heldur en þeir, sem fara með skattlagningu. Önnur helzta trúarsetningin er, að vont sé að hækka skatta. Slíkt leiði til brotthvarfs skattgreiðenda, fjarveru fjárfesta og vinnuleti fólks. Kenningarnar eru rangar, eins og kom í ljós í hruninu. Ríkisstjórnir Sjálfstæðisflokksins hefðu betur skattlagt meira af umsvifum ofurmenna, til dæmis með fjármagnstekjuskatti. Þá hefði það fé ekki brunnið upp til agna. Og þegið hefðum við, að ýmis ofurmenni hefðu flúið land fyrir nokkrum árum.
